2017-02-28 23:28:35 CET

2017-02-28 23:28:35 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Niðurstaða skuldabréfaútboðs OR


Reykjavík, 2017-02-28 23:27 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Útboð á nýjum skuldabréfum
Orkuveitu Reykjavíkur (OR) fór fram 28. febrúar 2017 í umsjón
fjárfestingarbankasviðs Arion banka. Boðin voru verðtryggð jafngreiðslubréf til
ríflega 29 ára í flokknum OR090546, verðtryggð jafngreiðslubréf til ríflega 7
ára í flokknum OR090524 og óverðtryggð vaxtagreiðslubréf til tæplega 6 ára í
flokknum OR011222. 

OR ákvað að taka tilboðum í bréf að nafnverði 2.000 milljónum króna samtals og
gefa út skuldabréf í flokki OR090546 að nafnverði 1.050 m.kr. á 3,25%
ávöxtunarkröfu, í flokki OR090524 að nafnverði 600 m.kr. á 3,39% ávöxtunarkröfu
og í flokki OR011222 að nafnverði 350 m.kr. á 5,60% ávöxtunarkröfu. Tilboð
bárust í bréf að nafnverði 3.160 m.kr. samtals, með ávöxtunarkröfu á bilinu
3,21-3,38% í verðtryggða OR090546 flokkinn, á bilinu 3,39-3,40% í verðtryggða
OR090524 flokkinn og bilinu 5,60-5,79% í óverðtryggða OR011222 flokkinn. 

Gjalddagi áskrifta, útgáfa og afhending bréfa er fyrirhuguð 3. mars 2017. Óskað
verður eftir að hin nýju skuldabréf verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði
Nasdaq Iceland þann dag, en fyrsti viðskiptadagur er tilkynntur með að lágmarki
eins dags fyrirvara. Áður hafa verið gefin út bréf í OR090546 að nafnverði
5.461.724.833 kr., í OR090524 að nafnverði 1.088.000.000 kr. og í OR011222 að
nafnverði 500.000.000 kr. Áður útgefin bréf í þessum flokkum hafa verið tekin
til viðskipta. 


         Nánari upplýsingar:
         Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR
         sími 516-6100, ingvar.stefansson@or.is
         Brynja Kolbrún Pétursdóttir forstöðumaður Fjárstýringar og greininga OR
         sími 516-6100, brynja.kolbrun.petursdottir@or.is
         Birgir Guðfinnsson, markaðsviðskiptum fjárfestingarbankasviðs Arion
banka hf. 
         sími 444-7337, verdbrefamidlun@arionbanki.is