2017-02-28 16:47:54 CET

2017-02-28 16:47:54 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landsvirkjun - Ársreikningur

Ársreikningur Landsvirkjunar 2016


Ásættanleg afkoma í krefjandi viðskiptaumhverfi

Ásættanleg afkoma í krefjandi viðskiptaumhverfi

Tvær virkjanir í byggingu til að mæta aukinni eftirspurn eftir raforkuHelstu
atriði ársreiknings 

  -- Rekstrartekjur námu 420,4 milljónum USD (47,5 ma.kr.), lækka um 1,1 milljón
     USD frá 2015 .1
  -- EBITDA nam 301,7 milljónum USD (34,1 ma.kr.) og lækkar um 20 milljónir USD
     frá fyrra ári. EBITDA hlutfall er 71,8% af tekjum, en var 76,3% árið áður.
  -- Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 117,7 milljónum USD (13,3
     ma.kr.), en var 130,6 milljónir USD árið áður og lækkar því um 9,9% milli
     tímabila.
  --  Hagnaður ársins var 66,8 milljónir USD (7,6 ma.kr.) en var 84,2 milljónir
     árið áður.
  --  Nettó skuldir lækkuðu um 24,9 milljónir USD (2,8 ma.kr.) á árinu 2016 og
     voru í árslok 1.960,5 milljónir USD (221,5 ma.kr.).
  --  Handbært fé frá rekstri nam 229,8 milljónum USD (26,0 ma.kr.), 7,7% lækkun
     frá 2015.



Hörður Arnarson, forstjóri:

„Afkoma Landsvirkjunar á árinu 2016 er vel ásættanleg, þótt hún dragist saman á
 milli ára. 

Ytri aðstæður voru ekki hagfelldar á árinu 2016. Álverð var áfram lágt, þótt
það hafi farið hækkandi á seinni hluta ársins. Enn eru tekjur okkar að nokkru
leyti bundnar við álverð. Þá minnkaði selt magn milli ára þvert á áætlanir,
vegna rekstrarvanda viðskiptavina. Þrátt fyrir þetta héldust tekjur nærri
óbreyttar milli ára. 

Sterkt sjóðstreymi gerði meira en að standa undir framkvæmdum við nýja
vatnsaflsvirkjun Búrfell II og jarðvarmavirkjun við Þeistareyki. Það er
ánægjulegt að geta unnið að þessari uppbyggingu og hækka ekki skuldir, heldur
þvert á móti lækka þær. 

Lækkun skulda á undanförnum árum er að skila sér í auknum mæli í rekstri
fyrirtækisins en það sést á verulegri lækkun vaxtagjalda milli ára. 

Lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar hækkaði um einn flokk í janúar 2017 og hefur
fyrirtækið hækkað um þrjá flokka á síðustu árum. Fyrirtækið er í
fjárfestingarflokki án ríkisábyrgðar og nálgast nú sambærileg fyrirtæki í
nágrannalöndunum að þessu leyti.“