2017-12-22 22:21:16 CET

2017-12-22 22:22:17 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Matsfyrirtækið S&P staðfesti í dag lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs, A/A-1, með stöðugum horfum


Í samræmi við birtingaráætlun sína staðfesti matsfyrirtækið S&P Global Ratings A/A-1 í dag, 22. desember 2017, lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs fyrir langtíma- og skammtímaskuldir í erlendum og innlendum gjaldmiðlum. Stöðugar horfur endurspegla þá skoðun matsfyrirtækisins að möguleikarnir á frekari styrkingu opinberra fjármála vegi á móti líkunum á ofhitnun hagkerfisins á næstu tveimur árum.