2014-02-18 17:12:40 CET

2014-02-18 17:13:41 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 16 1013 og RIKB 20 0205 - SKIPTIÚTBOÐ


Föstudaginn 21. febrúar kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með
tilboðsfyrirkomulagi. 

Boðin verða til sölu óverðtryggð bréf í flokknum RIKB 16 1013 og RIKB 20 0205.
Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð
sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa
er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu Lánamál ríkisins bjóða
jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu til
aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 25.
febrúar 2014. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði
öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 26. febrúar 2014.

                                  SKIPTIÚTBOÐ

Aðilar eiga þess kost í útboðinu að kaupa bréf í RIKB 16 1013 og RIKB 20 0205
með sölu á RIKB 14 0314, sem fellur á gjalddaga 14. mars nk. Lánamál ríkisins
kaupa RIKB 14 0314 á fyrirfram ákveðnu verði þ.e. hreina verðinu 99,98
(104,521781 með áföllum vöxtum m.v. 100 kr. nafnverðseiningu) m.v. uppgjör 26.
febrúar 2014. Til skýringar, jafngildir verðið 4,98% í flötum vöxtum. Andvirði
bréfanna ásamt áföllnum vöxtum kemur þá sem greiðsla fyrir kaupum á nýjum
bréfum. Þeir sem vilja nota RIKB 14 0314 sem greiðslu í útboðinu þurfa að
tilkynna Lánamálum ríkisins það eigi síðar en kl. 14:00 þriðjudaginn 25.
febrúar 2014. 

Fjárfestar sem eiga bréf í RIKB 14 0314 og hafa áhuga á að endurfjárfesta í
öðrum ríkisbréfum eru sérstaklega hvattir til þess að taka þátt í þessu útboði
með því að hafa samband við næsta banka.