|
|||
2009-03-03 10:35:40 CET 2009-03-03 10:36:40 CET REGULATED INFORMATION Moderna Finance AB - FyrirtækjafréttirLeiðrétting: - Erlendar eignir Milestone seldar og innlendar eignir færðar til Íslands - Birt 2009-03-03 10:14:56 CETLeiðrétting: Frétt átti að birtast undir fyrirtækinu Milestone. Moderna Finance AB, dótturfélag Milestone ehf. í Svíþjóð, hefur undirritað samninga um sölu á skaðatryggingafélaginu Moderna Forsäkringar og sjóðstýringarfyrirtækinu Aktie-Ansvar. Þá stefnir félagið að því að selja líftryggingafélagið Moderna Liv og bankann Banque Invik. Jafnframt verða íslenskar eignir félagsins, en það eru félögin Sjóvá, Askar Capital og Avant, seldar til Milestone og komast þar með aftur í eigu íslenskra aðila. Þessar breytingar hafa ekki áhrif á rekstur íslensku félaganna. Salan á eignum Moderna Finance er gerð í samráði við skilanefnd Glitnis sem er stærsti lánardrottinn Milestone. Með sölu á eignum Moderna Finance er horfið frá áformum um fjárhagslega endurskipulagningu sænsku Moderna samstæðunnar, sem eigendur félagsins og skilanefnd Glitnis hafa unnið að undanfarnar vikur. Endurskipulagningin, sem miðaði að því að verja hagsmuni kröfuhafa, gerði m.a. ráð fyrir að Glitnir leggði félögunum til nýtt fé til endurfjármögnunar lána. Stöðugt versnandi aðstæður á mörkuðum og verulegt vantraust sænskra aðila gagnvart íslensku eignarhaldi varð hins vegar til þess að áætlanir náðu ekki fram að ganga og því mun Glitnir ekki leggja sænsku félögunum til nýtt fé. Það er sameiginlegt mat skilanefndar Glitnis og stjórnenda Milestone að við núverandi aðstæður sé íslenskum hagsmunum best borgið með því að selja erlendar eignir Moderna samstæðunnar og að innlendar eignir verði færðar aftur undir móðurfélagið á Íslandi. Áætlað söluverð erlendra eigna Moderna samstæðunnar er mun lægra en vonir stóðu til að fjárhagsleg endurskipulagning og sala eigna á síðari stigum myndi skila. Forsvarsmenn Milestone munu á næstu vikum vinna að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í samvinnu við helstu lánardrottna sína. Skilanefnd Glitnis og stjórnendur Milestone hafa unnið ötullega saman að því á undanförnum mánuðum að tryggja hagsmuni kröfuhafa sem best. Í ljósi þessa eru það ákveðin vonbrigði að þær áætlanir, sem mikil vinna hefur verið lögð í, nái ekki fram að ganga. NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA Guðmundur Ólason, forstjóri Milestone: 820 9788 Kristján Óskarsson, skilanefnd Glitnis: 844 4411 |
|||
|