2010-04-06 17:44:28 CEST

2010-04-06 17:45:27 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisbréfa RIKB 11 0722


Föstudaginn 9. apríl kl. 11:00 fer fram útboð með tilboðsfyrirkomulagi hjá
Lánamálum ríkisins. 

Í þessu útboði verða seld bréf í RIKB 11 0722. Heildarfjárhæð samþykktra
tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. 

Lánamál ríkisins áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð
sem berast, hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er
heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudaginn 14. apríl 2010.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9633.