|
|||
![]() |
|||
2007-12-06 18:10:40 CET 2007-12-06 18:10:40 CET REGULATED INFORMATION FL GROUP hf. - FlöggunOddaflug B.V. og Materia Invest ehf.Hér með tilkynnist að Oddaflug B.V. og Materia Invest ehf. hafa gert með sér samkomulag um að fara sameiginlega með atkvæðisrétt í FL Group frá og með deginum í dag. Sameiginlegur atkvæðisréttur er því 25,19%. Fyrir daginn í dag fór Oddaflug B.V. með 20,52% atkvæðisrétt í FL Group en eftir viðskipti sín sem fóru fram í dag 15,96%. Fyrir daginn í dag fór Materia Invest ehf. ásamt dótturfélagi sínu Sólmon ehf. með 11,54% atkvæðisrétt í FL Group en eftir sölu Sólmon ehf. á 2,31% hlut sínum í FL Group fer Materia Invest með 9,23% atkvæðisrétt. Materia Invest ehf. er í jafnri eigu Magnúsar Ármanns, Þorsteins M. Jónssonar og Kevins Stanford. Magnus Armann og Þorsteinn M. Jónsson eru stjórnarmenn í FL Group. Oddaflug B.V. er í eigu Eignarhaldsfélagsins Oddaflug ehf. sem er í eigu Hannesar Smárasonar fyrrverandi forstjóra FL Group hf. |
|||
|