2024-06-20 08:30:00 CEST

2024-06-20 08:30:02 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Marel hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Marel: JBT leggur fram valfrjálst yfirtökutilboð til hluthafa Marel


Í dag tilkynnti John Bean Technologies Corporation („JBT“) um valfrjálst tilboð til hluthafa Marel hf. („Marel“ eða „félagið“) í allt útgefið og útistandandi hlutafé í félaginu. Yfirtökutilboðið er byggt á skilmálum og skilyrðum sem sett eru fram í opinberu tilboðsyfirliti sem birt verður opinberlega þann 24. júní 2024. Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur samþykkt tilboðsyfirlitið, en jafnframt mun JBT gefa út lýsingu vegna tilboðsins og fyrirhugaðrar töku þeirra hlutabréfa JBT sem gefin verða út í tengslum við tilboðið til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Gildistími tilboðsins hefst þann 24. júní 2024 og rennur út kl. 17:00 að íslenskum tíma þann 2. september 2024 (hægt er að framlengja slíka dagsetningu á hverjum tíma samkvæmt viðskiptasamningi sem JBT og Marel gerðu með sér þann 4. apríl 2024 og ákvæðum laga um yfirtökur og bandarískrar verðbréfamarkaðslöggjafar).

Meðfylgjandi er auglýsing um valfrjálst tilboð JBT til hluthafa Marel sem birtist í fjölmiðlum á Íslandi í dag í samræmi við ákvæði laga nr. 108/2007 um yfirtökur.
 
Árni Sigurðsson, forstjóri Marel:
“JBT hefur í dag lagt fram formlegt tilboð sem er mikilvægt skref í átt að mögulegri sameiningu Marel og JBT. Með sameiningu félaganna yrði til leiðandi félag á alþjóðavísu sem mun stuðla að hagkvæmari og sjálfbærari matvælavinnslu um heim allan. Skýr framtíðarsýn og stefna Marel hafa þjónað félaginu vel og skilað miklum árangri. Sameinað félag mun eiga þess kost að ná enn betri árangri með aukinni stærðarhagkvæmni, breiðara vöruúrvali og framúrskarandi getu til að þjónusta viðskiptavini okkar.”
 
Símafundur fyrir fjárfesta fimmtudaginn 20. júní
JBT og Marel munu halda sameiginlega kynningu fyrir fjárfesta og markaðsaðila á símafundi sem fram fer í dag, 20. júní, kl. 14:00. Þar munu stjórnendur beggja félaga fjalla um þau stóru tækifæri og samlegðaráhrif sem felast í sameiningu félaganna fyrir hluthafa Marel og aðra hagaðila. Símafundurinn mun fara fram á ensku.
 
Vinsamlegast athugið að fundinum verður streymt í hljóðútsendingu á eftirfarandi vefsíðu: Skráning á símafund. Upptaka af fundinum verður aðgengileg að fundi loknum. Til þess að leggja fram spurningar á fundinum þarf að skrá sig á eftirfarandi vefsíðu: Skráning vegna spurninga. Kynningarefni fundarins verður aðgengilegt á fjárfestasíðum JBT, Marel og á vef Arion banka.
 
Fjárfestakynning á Íslandi og beint streymi mánudaginn 24. júní
JBT og Marel munu jafnframt halda opinn fjárfestafund mánudaginn 24. júní 2024 kl. 13:00 á íslenskum tíma í höfuðstöðvum Arion Banka. Fundurinn mun fara fram á ensku og verður jafnframt í beinu streymi sem aðgengilegt verður á fjárfestasíðum JBT, Marel og á vef Arion banka.
 
Skrá þarf mætingu á fundinn fyrir fram þar sem húsrúm er takmarkað, en skráning fer fram hér: Skráning á fjárfestafund JBT og Marel.
 
Helstu skilmálar yfirtökutilboðs
Líkt og áður hefur komið fram, leggur JBT fram valfrjálst yfirtökutilboð á verðinu 3,60 evrur á hlut í allt útistandandi hlutafé í Marel.

Hluthafar Marel munu hafa sveigjanleika í vali á samsetningu endurgjalds: að fá greitt í formi reiðufjár, hlutabréfa, eða blöndu af hlutabréfum og reiðufé. Val um samsetningu endurgjalds takmarkast af því að vegið meðaltal fulls endurgjalds JBT fyrir allt hlutafé í Marel verði 65% í formi afhentra hlutabréfa í JBT og um 35% í formi reiðufjár. Með tilliti til áhrifa af samsetningu endurgjalds, myndi hlutfallsleg skipting eftir viðskipti leiða til þess að hluthafar myndu fá greiddar um það 950 milljónir evra og eignast um 38% hlutafjár sameinaðs félags.

Hlutfallsleg skipting eftir viðskipti byggir á forsendu um að virði JBT sé 96,25 dollarar á hlut. Hluthafar Marel munu hafa möguleika á að velja hlutabréf JBT sem skráð eru á New York Stock Exchange (NYSE) eða á Nasdaq Iceland að undangenginni tvískráningu JBT á Íslandi.

Spurningar hluthafa um tilboðsferlið
Þeir hluthafar sem eiga hlutabréf í félaginu skráð hjá Nasdaq Iceland hf. geta haft samband við Arion banka hf. með spurningar í tengslum við samþykktarferli og/eða uppgjör tilboðsins á netfangið assistance.marel2024@arionbanki.is.
 
Þeir hluthafar sem eiga hlutabréf í félaginu skráð á Euronext Amsterdam skulu hafa samband við sinn vörsluaðila til þess að nálgast upplýsingar um samþykktarferli og/eða uppgjör tilboðsins. Vörsluaðilar og hluthafar geta haft samband við ABN AMRO Bank N.V. með spurningar á netfangið corporate.broking@nl.abnamro.com.
 
Marel hefur ráðið J.P. Morgan sem fjármálaráðgjafa og jafnframt fengið Rabobank til að gefa stjórn félagsins sjálfstætt álit varðandi sanngirni á greiðslu til hluthafa í fyrirhuguðu yfirtökutilboði. Lagalegir ráðgjafar eru Baker McKenzie (Bandaríkin), BBA/Fjeldco (Ísland), og Osborne Clarke (Holland).

Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001.