|
|||
2016-08-03 19:02:16 CEST 2016-08-03 19:02:16 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki stækkar markflokka sértryggðra skuldabréfaArion banki hf. lauk í dag útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq OMX Íslandi. Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 21 var stækkaður um 440 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,48%. Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 29 var stækkaður um 1.280 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,40%. Öllum tilboðum var hafnað í óverðtryggða flokkinn ARION CB 22 að þessu sinni. Heildareftirspurn í útboðinu var 1.780 m. kr. Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokki sem tekinn hefur verið til viðskipta á Nasdaq OMX Íslandi. Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á að næsta útboð sértryggðra skuldabréfa fari fram þann 7. september næstkomandi. Það sem af er ári 2016 hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 17.820 m. kr. Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 54.980 m. kr. Nánari upplýsingar veitir Kristín Erla Jónsdóttir, fjármögnun Arion banka, kristin.erla.jonsdottir@arionbanki.is , s: 444 6272 |
|||
|