|
|||
![]() |
|||
2015-11-12 09:26:55 CET 2015-11-12 09:28:03 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - ÁrshlutareikningarIslandsbanki hf. : Afkoma á fyrstu 9 mánuðum ársins 2015HELSTU NIÐURSTÖÐUR 9M 2015 * Hagnaður bankans eftir skatta var 16,7 ma. kr. á fyrstu 9 mánuðum ársins 2015 samanborið við 18,2 ma. kr. á sama tímabili 2014 en þá voru tekjur af einskiptisliðum umfangsmeiri. * Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi var 11,9 ma. kr. samanborið við 11,4 ma. kr. á sama tíma 2014. * Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 14% eiginfjárhlutfall A var 13,0% samanborið við 13,1% á sama tímabili 2014. * Hreinar vaxtatekjur voru 21,0 ma. kr. (9M14: 20,6 ma. kr.). Vaxtamunur var 2,9% (9M14: 3,1%). * Hreinar þóknanatekjur voru 9,9 ma. kr. (9M14: 8,5 ma. kr.) eða 16,6% aukning milli ára. * Kostnaðarhlutfall var 56,3% (9M14: 56,1%). Bankaskattur og einskiptiskostnaður er undanskilinn við útreikning kostnaðarhlutfalls. * Útlán til viðskiptavina jukust um 4% frá áramótum í takt við hagvöxt. Útlánaaukningin dreifist vel á mismunandi viðskiptaeiningar bankans. * Heildareignir voru 1.004 ma. kr. (júní15: 976ma. kr.). * Innlán frá viðskiptavinum jukust um 10% milli ára og voru 581 ma. kr. í lok tímabilsins. * Tvær skuldabréfaútgáfur í erlendri mynt á fjórðungnum, EUR 100 m. og SEK 150 m. * Eiginfjárhlutfallið var áfram hátt eða 29,2% (júní15: 28,3%) og eiginfjárhlutfall A (Tier 1) var 26,9% (júní15: 25,8%). * Lausafjárstaða bankans er sterk og er umfram kröfur eftirlitsaðila og innri viðmið. * Vogunarhlutfall var 18,3% við lok tímabilsins, sem telst hóflegt. * Hlutfall lána með varúðarafskrift og lána með vanskil umfram 90 daga var 2,4% (júní15: 2,7%). * S&P og Fitch færðu lánshæfismat bankans í fjárfestingarflokk með stöðugum horfum í júlí og staðfestu mat sitt í nóvember. Íslandsbanki er eini íslenski bankinn í fjárfestingarflokki hjá báðum þessum matsfyrirtækjum. 3F 2015 * Hagnaður bankans eftir skatta var 5,9 ma. kr. á þriðja ársfjórðungi (3F14: 3,5 ma. kr.) * Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 14% eiginfjárhlutfall A var 11,2% á fjórðunginum (3F14: 14,4%) * Hreinar vaxtatekjur voru 7,5 ma. kr. á þriðja ársfjórðungi (3F14: 7,1 ma. kr.) * Hreinar þóknanatekjur voru 3,5 ma. kr. á 3F15 (3F14: 2,8 ma. kr.) sem er 23,2% aukning. * Lán til viðskiptavina jukust um 6,6 ma. kr. á fjórðungnum, eða um 1% og voru 660 ma. kr. við lok fjórðungsins. * Innlán frá viðskiptavinum jukust um 14 ma. kr. eða 2,5% á fjórðungnum og voru 581 ma. kr. við lok fjórðungsins. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka: ,,Afkoma Íslandsbanka fyrstu níu mánuði ársins var mjög góð. Við sjáum áframhaldandi fjölbreytni í tekjustoðum bankans og jukust þóknanatekjur um 17% milli ára. Á sama tíma hefur vöxtur útlána verið hóflegur. Seðlabanki Íslands hækkaði bindiskylduna í lok september sem dregur úr útlánagetu bankanna, en við vonum að hér sé um tímabundna aðgerð að ræða. Lánshæfismatsfyrirtækið Standard and Poor's hækkaði bankann í fjárfestingarflokk BBB-/A-3 í júlí og staðfesti nýlega mat sitt eftir að tilkynnt var um aðgerðir tengdum afléttingu hafta. Á fjórðungnum gaf Íslandsbanki út nýja þjóðhagsspá, en gert er ráð fyrir yfir 4% hagvexti næstu tvö ár. Eins hélt bankinn fjölda funda um fjármál og efnahagsmál sem hafa verið mjög vel sóttir. Við finnum fyrir miklum áhuga á fræðslustarfi bankans og má þá sérstaklega nefna áhuga ungs fólks á fundum um fjárfestingar og sparnað." Markaðsaðilum boðið upp á símafund kl. 14.00 á ensku. Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir fundinn. Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla, www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl. Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752. Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [HUG#1966328] |
|||
|