2015-01-16 12:45:00 CET

2015-01-16 12:45:01 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 20 0205 og RIKB 31 0124


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 20 0205 og RIKB 31 0124 fór fram hjá
Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt
tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa)
ákvarðaði söluverðið. 

                    Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 20 0205:

Alls bárust 11 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.100 m.kr. að nafnverði.
Öllum tilboðum var tekið fyrir 2.100 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 102,310
(5,71% ávöxtunarkröfu). 

RIKB 31 0124:

Alls bárust 32 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 9.300 m.kr. að nafnverði. 27
tilboðum var tekið fyrir 6.400 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 100,150 (6,48%
ávöxtunarkröfu). 



Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 20.
janúar. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 21. janúar 2015.