2016-12-29 16:17:59 CET

2016-12-29 16:17:59 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landsnet hf. - Fyrirtækjafréttir

Landsnet gefur út skuldabréf að fjárhæð 200 milljónir USD


Landsnet hefur gefið út óveðtryggð skuldabréf að fjárhæð 200 milljónir
bandaríkjadollara (22,9 milljarðar króna). Bréfin voru seld til alþjóðlegra
fagfjárfesta í lokuðu útboði og munu ekki verða skráð í Kauphöll. Bréfin eru að
stærstum hluta með gjalddaga eftir tíu til tólf ár og bera að meðaltali 4,56%
fasta vexti. Fjármögnunin er liður í því að tryggja félaginu fjármagn á
hagstæðum kjörum til lengri tíma, breyta samsetningu lána og draga úr
gengisáhættu. 

Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets segir þessa fyrstu erlendu
skuldabréfaútgáfu Landsnets vera stórt skref og það sé ánægjulegt hvað
fjárfestar sýndu félaginu mikið traust. 

„Skuldabréfaútgáfan skilar okkur hagstæðari kjörum auk þess sem dregið er úr
gengisáhættu en félagið tók upp dollar sem uppgjörsmynt í ársbyrjun. Þá er
lánstíminn lengri en almennt hefur tíðkast í erlendum lántökum síðustu árin.
Við erum fyrsta orkufyrirtækið á landinu til að fara þessa leið í fjármögnun og
er ánægulegt hvað kjörin sem okkur bjóðast eru hagstæð og móttökurnar góðar.
Það er árangur mikillar og góðrar kynningar á bæði félaginu og Íslandi.“ 

Tilboð bárust fyrir ríflega 260 milljónir bandaríkjadollara og var ákveðið að
tvöfalda útgáfuna vegna mikils áhuga fjárfesta og góðra kjara. Fjármögnunin er
tekin í tveimur áföngum þar sem helmingur er greiddur núna og eftirstöðvar í
mars næstkomandi. 

Barclays banki plc hafði umsjón með skuldabréfaútgáfunni.

Nánari upplýsingar gefur Guðlaug Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjármála
Landsnets, gudlaugs@landsnet.is eða í síma 563 9300.