2008-07-29 18:09:15 CEST

2008-07-29 18:10:15 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
SPRON Verðbréf hf. - Fyrirtækjafréttir

- SPRON lýkur verðbréfun íbúðalánasafns fyrir 21 milljarð króna


SPRON lauk í dag verðbréfun íbúðalánasafns (e. securitization) fyrir um 21
milljarð króna, fyrst fjármálastofnana á Íslandi. 78,5% af þeim skuldabréfum
sem um ræðir fengu Aaa lánshæfismat frá Moody´s. Skuldabréfin eru gefin út í
evrum. 

Skuldabréfin hafa verið skráð í tveimur kauphöllum, OMX Nordic Exchange á
Íslandi og NYSE Euronext Amsterdam. Þau eru jafnframt gjaldgeng í endurhverfum
viðskiptum hjá Seðlabanka Íslands og Seðlabanka Evrópu. 

„Við erum mjög ánægð með að SPRON hafi fengið hæsta mögulega mat frá Moody´s á
þessi bréf ekki síst í ljósi þess hve aðstæður eru erfiðar á markaði um þessar
mundir.  Matið opnar nýjar leiðir fyrir SPRON í tengslum við fjármögnun og mun
traust eignasafn samstæðunnar gera okkur  kleift að fjármagna starfsemina áfram
með þessum hætti. ” segir Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON. 

SPRON og Fortis banki voru umsjónaraðilar útgáfunnar.

Nánari upplýsingar veita: 
Ósvaldur Knudsen, framkvæmdastjóri Fjárstýringar SPRON, sími 550 1200, 
og netfang: osvaldur@SPRON.is 

Ingi Pálsson, verkefnastjóri í Fjárstýringu SPRON, sími 550 1200, 
og netfang: ingik@SPRON.is

Soffía Sigurgeirsdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími 550 1200 og 
netfang: soffias@SPRON.is