2017-10-16 10:17:25 CEST

2017-10-16 10:17:25 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Íslandsbanki undirritar samning um viðskiptavakt við Arion banka, Kviku og Landsbankann


Íslandsbanki  hf. hefur  undirritað samninga  við Arion  banka hf., Kviku hf. og
Landsbankann um viðskiptavakt á eftirmarkaði með sértryggð skuldabréf útgefin af
Íslandsbanka.   Skuldabréfin   eru  skráð  á  Nasdaq  Iceland  og  taka  skyldur
viðskiptavaka samkvæmt samningi gildi þann 16. október 2017.

Tilgangur   þessa   samnings  er  að  efla  viðskipti  með  þau  skuldabréf  sem
samningurinn  tekur til,  auka seljanleika  þeirra á  eftirmarkaði og  stuðla að
eðlilegri verðmyndun.

Viðskiptavakar  munu  daglega  setja  fram  kaup-  og sölutilboð í skuldabréfin.
Lágmarksfjárhæð   tilboða   í  markflokka  skuldabréfa  skal  vera  80 m.kr.  en
lágmarksfjárhæð  tilboða  í  aðra  flokka  skal  vera 20 m.kr.  Fyrir markflokka
gildir  að ef útistandandi nafnvirði er minna en 10 ma. kr. skal fjárhæð tilboða
vera  60 m.kr. en 80 m.kr. þegar stærð flokks hefur náð 10 ma. kr. að nafnvirði.
Skuldabréfaflokkarnir ISLA CB 23, ISLA CBI 26 og ISLA CBI 30 eru markflokkar.

Hámarksmunur  kaup-  og  sölutilboða  fer  eftir  árafjölda  til lokagjalddaga á
hverjum tíma sbr. neðangreinda töflu:

+-------------------------------------------+
|Eftirstandandi líftími bréfs Hámarksverðbil|
+-------------------------------------------+
|       0 - 6 mánuðir             Enginn    |
|                                           |
|      6 mánuðir - 2 ár           0,20%     |
|                                           |
|          2 - 4 ár               0,30%     |
|                                           |
|          4 -6 ár                0,35%     |
|                                           |
|          6 - 9 ár               0,60%     |
|                                           |
|          9 -12 ár               0,70%     |
|                                           |
|         12 - 18 ár              1,00%     |
|                                           |
|      18 ár eða lengra           1,15%     |
+-------------------------------------------+
Verðtryggðir flokkar sem eru ótækir til frekari útgáfu vegna reglna Seðlabanka
Íslands nr. 492/2001 um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár, með síðari
breytingum, eru undanþegnir ofangreindum kvöðum um hámarksmun kaup- og
sölutilboða.

Skyldur einstakra viðskiptavaka falla niður á tilteknum viðskiptadegi ef
viðskiptavaki hefur átt viðskipti (tilgreind "AUTO") með sértryggð skuldabréf
fyrir 500 m. kr. að nafnverði samanlagt í þeim flokkum sem samningurinn nær til.

Frá gildistöku samninga um viðskiptavakt geta viðskiptavakar fengið tímabundin
bréfalán í flokki þeirra skuldabréfa sem samningurinn tekur til. Hámarkslán til
einstakra viðskiptavaka er 320 m. kr. að nafnverði í hverjum markflokki og
flokkum sem áður hafa verið skilgreindir sem markflokkar en 80 m. kr. í öðrum
flokkum.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárstýring - Egill Skúli Þórólfsson, egill.thorolfsson@islandsbanki.is og í
    síma 440 2615.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
    440 4005.


[]