2016-06-04 19:48:01 CEST

2016-06-04 19:48:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Nýtt stjórntæki til að tempra og hafa áhrif á samsetningu fjármagnsinnstreymis


Seðlabanki Íslands hefur birt reglur um bindingu reiðufjár vegna nýs
innstreymis erlends gjaldeyris í samræmi við nýtt bráðabirgðaákvæði laga nr.
87/1992 um gjaldeyrismál. Megintilgangur lagaákvæðisins er að veita Seðlabanka
Íslands nýtt stjórntæki gagngert til að tempra og hafa áhrif á samsetningu
fjármagnsflæðis til landsins, svokallað fjárstreymistæki. Því er ætlað að draga
úr áhættu sem getur fylgt óhóflegu fjármagnsinnflæði innan núgildandi
regluverks um gjaldeyrismál, styðja við aðra þætti innlendrar hagstjórnar og
stuðla með því að þjóðhagslegum og fjármálalegum stöðugleika. 

Fjárstreymistæki Seðlabankans byggist á bindingu reiðufjár vegna nýs
innstreymis erlends gjaldeyris samkvæmt reglum sem bankinn setur á grundvelli
laga um gjaldeyrismál. Útfærsla fjárstreymistækisins tekur mið af því að
stjórntækið dragi úr áhættu sem verulegt fjármagnsinnstreymi getur skapað með
því að hafa bein áhrif á hvata til vaxtamunarviðskipta. Þannig er tækinu m.a.
ætlað að stuðla að skilvirkri miðlun peningastefnunnar. Útfærslan tekur
ennfremur mið af því að stjórntækið sé sveigjanlegt, markvisst og skilvirkt í
framkvæmd svo hægt sé að bregðast skjótt við breyttum aðstæðum. 

Í reglunum er kveðið á um framkvæmd bindingar reiðufjár vegna nýs innstreymis
erlends gjaldeyris, þar á meðal um bindingargrunn, bindingartíma,
bindingarhlutfall, uppgjörsmynt bindingar og vexti á fjárstreymisreikningum
innlánsstofnana hjá Seðlabanka Íslands. Bindingargrunnurinn er nýtt innstreymi
erlends gjaldeyris í tengslum við tiltekna fjármuni, einkum nýfjárfestingu í
rafrænt skráðum skuldabréfum og víxlum, og innstæður. Auk þess getur nýtt
innstreymi í tengslum við lánveitingar, sem nýttar eru til fjárfestingar í
fyrrgreindum fjármunum, myndað bindingargrunn. Nánar er kveðið á um
bindingargrunninn í reglunum. Lögin gera ráð fyrir að bindingartími geti orðið
allt að fimm ár og bindingarhlutfall hæst orðið 75%, en samkvæmt reglunum er
bindingartíminn eitt ár og hlutfallið 40%. Í reglunum er einnig kveðið á um að
vextir á fjárstreymisreikningum innlánsstofnana hjá Seðlabanka Íslands vegna
nýs innstreymis séu 0% og uppgjörsmynt bindingar sé íslenskar krónur.