2010-06-16 17:48:28 CEST

2010-06-16 17:49:26 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landsvirkjun - Fyrirtækjafréttir

Landsvirkjun undirritar nýjan samning um orkusölu við Alcan á Íslandi


Landsvirkjun og Alcan á Íslandi hafa samið um orkusölu til álversins í
Straumsvík. Samningurinn er undirritaður með hefðbundnum fyrirvörum, meðal
annars samþykki stjórna beggja félaganna, sem gert er ráð fyrir að verði
uppfylltir eigi síðar en 31. ágúst næstkomandi. 

Samningurinn er tvíþættur. Annars vegar er endursamið um verð á núverandi
orkusölu til álversins (2.932  GWst) og hins vegar er samið um afhendingu
viðbótar orku (658 GWst) vegna áætlaðrar framleiðsluaukningar álversins. Nýtt
raforkuverð tekur gildi 1. október 2010. Það er í bandaríkjadölum, verðbætt
miðað við bandaríska neysluvísitölu og er álverðstenging afnumin. Samningurinn
gildir til ársins 2036 sem er tæplega tólf ára framlenging frá núverandi
samningi. 

Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar segir að samningurinn sé fyrsta
skrefið í nýrri stefnu Landsvirkjunar um að tengja verðþróun á raforku
hérlendis við þróun raforkuverðs á alþjóðlegum mörkuðum. Hann telur samninginn
á margan hátt marka tímamót í orkusölusamningum  Landsvirkjunar. 

Til að mæta aukinni orkusölu mun Landsvirkjun ráðast í byggingu
Búðarhálsvirkjunar og verða útboð auglýst á næstu vikum.  Gert er ráð fyrir að
afhending orku frá virkjuninni hefjist árið 2013. Unnið er að fjármögnun
verksins og gengur sú vinna samkvæmt áætlun. Gert er ráð fyrir að ljúka
fjármögnun fyrir 31. ágúst  2010. 



Nánari upplýsingar veitir: 
Ragna Sara Jónsdóttir
yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar
sara@lv.is
515 9000 / 849 2122