|
|||
![]() |
|||
2017-09-12 17:54:17 CEST 2017-09-12 17:54:17 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf. : Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem þrír flokkar voru boðnir til sölu. Heildartilboð í útboðinu voru 21 talsins og námu samtals 4.060 m. kr. að nafnverði. Sjö tilboð að fjárhæð 780 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 21 á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,41%-5,49%. Tilboðum að fjárhæð 480 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 5,45%. Heildarstærð flokksins verður 4.680 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Fimm tilboð að fjárhæð 420 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,61%-2,65%. Tilboðum að fjárhæð 320 m. kr. tekið á ávöxtunarkröfunni 2,62%. Heildarstærð flokksins verður 6.600 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Níu tilboð að fjárhæð 2.860 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,60%-2,64%. Öllum tilboðum var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,64%. Heildarstærð flokksins verður 17.100 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 19. september 2017. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. [] |
|||
|