|
|||
![]() |
|||
2016-03-30 17:52:31 CEST 2016-03-30 17:52:31 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. lýkur sölu sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag lokuðu útboði á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa. Alls bárust tilboð að fjárhæð 4.960 m. kr. í útboðinu og var tilboðum tekið fyrir 560 m. kr. Seld voru skuldabréf í LBANK CBI 22, verðtryggðum flokki sem skráður er á Nasdaq Iceland, fyrir 560 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,20%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 13.680 m. kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins 14.240 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Öllum tilboðum í LBANK CB 19 var hafnað. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 6. apríl 2016 en Kvika sinnir viðskiptavakt með ofangreinda flokka sértryggðra skuldabréfa. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. |
|||
|