|
|||
![]() |
|||
2010-05-12 13:46:05 CEST 2010-05-12 13:47:04 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstöður útboðs ríkisvíxla RIKV 10 0915Útboð á ríkisvíxlum í flokki RIKV 10 0915 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 10 0915: Alls bárust 36 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 22.910 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 12.335 m.kr. að nafnverði á verðinu 97,943 (flatir vextir 6,25%) |
|||
|