|
|||
![]() |
|||
2017-01-10 17:24:17 CET 2017-01-10 17:24:17 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem þrír flokkar voru boðnir til sölu. Heildartilboð í útboðinu voru 21 talsins og námu samtals 2.340 m. kr. að nafnverði. Átta tilboð að fjárhæð 580 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 21 á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,49%-5,65%. Tilboðum að fjárhæð 440m var tekið á ávöxtunarkröfunni 5,50%. Heildarstærð flokksins verður 2.100 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Fjögur tilboð að fjárhæð 780 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 22 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,29%-3,30%. Tilboðum að fjárhæð 600m var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,29%. Heildarstærð flokksins verður 19.340 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Níu tilboð að fjárhæð 980 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,05%-3,09%. Tilboðum að fjárhæð 400m var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,05%. Heildarstærð flokksins verður 3.740 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 17. janúar 2017. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. [] |
|||
|