2015-05-27 15:30:00 CEST

2015-05-27 15:30:02 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Anglų Islandų
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Lán frá Póllandi greitt upp


Ríkissjóður Íslands endurgreiðir fyrirfram í vikunni lán frá Póllandi sem tekið
var árið 2009 í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda eftir fall
fjármálakerfisins, sem studd var af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Um er að ræða
endurgreiðslu að fjárhæð 204 milljónir slota, jafnvirði um 7,3 milljarða króna.
Lánsloforð Pólverja var upp á 630 milljónir slota og þar af nýtti Ísland um
þriðjung. Lánið var á gjalddaga á árunum 2015-2022. 

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, Már Guðmundsson
seðlabankastjóri og Mateusz Szczurek fjármálaráðherra Póllands undirrituðu í
dag viðauka við lánssamning Póllands við ríkissjóð, sem gerir ríkissjóði kleift
að forgreiða lán Póllands. Szczurek er staddur hér á landi í vináttuheimsókn í
boði fjármála- og efnahagsráðherra. 

„Með því að bjóða Íslandi lán á erfiðum tímum og leggja þannig þjóðinni lið við
endurreisn landsins sýndu Pólverjar Íslendingum mikið vinarbragð. Slík vinátta
er dýrmæt og íslenska þjóðin þakkar fyrir hana,“ sagði Bjarni Benediktsson á
fundi ráðherranna í dag. 

Endurgreiðsla markar tímamót

Endurgreiðsla á láni Pólverja til Íslands markar tímamót. Með henni lýkur
uppgjöri á þeirri aðstoð sem Ísland fékk frá vinaþjóðum í formi lána í kjölfar
hrunsins. Árið 2014 forgreiddu ríkissjóður og Seðlabanki Íslands það sem út af
stóð af lánum Norðurlanda. 

Seðlabanki Íslands hefur þegar forgreitt meirihluta af láni AGS. Eftir standa
gjalddagar í lok þessa árs og á fyrrihluta næsta árs. 

Greiður aðgangur Íslands að erlendum fjármagnsmörkuðum, eins og velheppnuð
skuldabréfaútgáfa í evrum í fyrra vitnar um, ásamt þeim árangri sem náðst hefur
í efnahags- og ríkisfjármálum á síðustu árum og betri afkomu ríkissjóðs, hefur
gert Íslandi kleift að forgreiða þau lán sem tekin vor í kjölfar hruns
fjármálakerfisins 

Nánari upplýsingar veitir Esther Finnbogadóttir í síma 5459200.