|
|||
2015-05-12 12:23:24 CEST 2015-05-12 12:24:27 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirMálið varðar auglýsingu á útdregnum húsbréfum og birtingu þeirra þann 15. maí 2015. En þau eru til innlausnar 15. júlí 2015.Vegna verkfalls lögfræðinga, hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, er ógerlegt að draga út þau númer húsbréfa sem auglýsa á eigi síðar en 15. maí n.k. og eiga að vera til innlausnar 15. júlí 2015. Í reglugerð um húsbréf segir að númer útdreginna húsbréfa skulu birt í Lögbirtingablaði í síðasta lagi tveimur mánuðum fyrir gjalddaga. Einnig segir að útdráttur skuli fara fram hjá Raunvísindastofnun Háskólans að viðstöddum fulltrúa Íbúðalánasjóðs undir umsjón lögbókanda sem kemur frá Sýslumannsembættinu á höfuðborgarsvæðinu. Eftirtaldir flokkar og nafnverð eru á innlausn þann 15. júlí n.k. 1. flokkur 1991 IBH16-0115 5.080.000 3. flokkur 1991 IBH16-1015 2.610.000 1. flokkur 1992 IBH17-0115 1.000.000 2. flokkur 1992 IBH17-0415 2.100.000 1. flokkur 1993 IBH18-0415 2.100.000 3. flokkur 1993 IBH18-1015 3.000.000 1. flokkur 1994 IBH19-0115 7.200.000 1. flokkur 1995 IBH20-0115 11.850.000 2. flokkur 1996 IBH21-0115 110.000 3. flokkur 1996 IBH36-0115 3.210.000 Útdráttur fer fram um leið og hægt verður að draga húsbréfin út og þau auglýst í kjölfarið. Stefnt er að því að þessi húsbréf verði innleyst þann 15. júlí 2015 |
|||
|