|
|||
2017-05-08 17:27:09 CEST 2017-05-08 17:27:09 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLeiðrétting: Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa - Frétt birt 2017-05-03 19:10:05Leiðrétting - Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 71.260 m. kr. en ekki 70.300 eins og fram kom í fyrri tilkynningu Arion banki hf. lauk í dag útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa. Heildareftirspurn í útboðinu var 4.020 m. kr. og fjöldi tilboða var 25. Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 25 bárust 16 tilboð að nafnvirði samtals 3.440 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,92% - 3,13%. Samþykkt voru tilboð í ARION CBI 25 að fjárhæð 1.300 m.kr. á 2,96% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 4.040 m.kr. eftir útgáfuna. Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 22 bárust 7 tilboð að nafnvirði samtals 520 m. kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,32% – 5,36%. Öllum tilboðum í ARION CB 22 var hafnað að þessu sinni. Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 19 bárust 2 tilboð að nafnvirði samtals 60 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,29% - 5,30%. Öllum tilboðum í ARION CB 19 var hafnað að þessu sinni. Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokki sem hafa verið til viðskipta á Nasdaq Ísland. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 10. maí 2017 Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á að næsta útboð sértryggðra skuldabréfa fari fram þann 7. júní næstkomandi. Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 71.260 m. kr. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|