2017-03-16 12:44:46 CET

2017-03-16 12:44:46 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Leiðrétting: Arion banki lýkur víxlaútboði Frétt birt 2017-03-15 18:32:00


Leiðrétting - Kröfubil fyrir víxlanna leiðrétt og samþykkt tilboð í 5 mánaða
víxilinn leiðrétt 

Arion banki hf. lauk í dag, miðvikudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm
mánaða.  Í heild bárust 26 tilboð upp á 3.580 milljónir kr. og var tilboðum
tekið fyrir 1.380 milljónir kr. 

Í heild bárust 9 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.240 milljónir kr., á
flötum vöxtum á bilinu 5,19% - 5,40%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 560
milljónir á 5,20% flötum vöxtum. 

Í heild bárust 11 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.480 milljónir kr., á
flötum vöxtum á bilinu 5,15% - 5,40%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 480
milljónir á 5,20% flötum vöxtum. 

Í heild bárust 6 tilboð í 12 mánaða víxilinn að fjárhæð 860 milljónir kr., á
flötum vöxtum á bilinu 5,39% - 5,55%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 340
milljónir á 5,45% flötum vöxtum. 

Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 20
mars. 

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs
Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.