|
|||
![]() |
|||
2025-01-14 18:05:00 CET 2025-01-14 18:05:01 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarArion banki hf.: Niðurstaða útboðs almennra skuldabréfa í íslenskum krónumArion banki lauk í dag útboði á almenna skuldabréfaflokknum ARION 28 1215 fyrir samtals 4.860 m.kr. Í flokkinn ARION 28 1215 bárust 22 tilboð að fjárhæð 7.760 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 4,50% – 4,83%. Tilboð að nafnvirði 4.860 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 4,70%. Heildarstærð flokksins verður 16.920 m.kr. eftir útgáfuna. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 21. janúar 2025. Útgáfan verður gefin út undir 3,0 milljarða evra Euro Medium Term Notes (EMTN) útgáfuramma bankans. Grunnlýsingu EMTN rammans má nálgast hér. Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka. |
|||
|