2010-06-08 17:39:01 CEST

2010-06-08 17:39:59 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų Anglų
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisvíxla RIKV 10 1015


Föstudaginn 11. júní kl: 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokki RIKV 10 1015 sem er með gjalddaga 15. október 2010. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudaginn 15. júní 2010.

Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX á Íslandi miðvikudaginn 16.
júní 2010.