|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2022-08-14 14:30:00 CEST 2022-08-14 14:30:00 CEST REGULATED INFORMATION Kvika banki hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsKvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 32 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 9.000.000 eigin hluti að kaupverði 195.850.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 18. maí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 31. mars 2022. Kvika átti 83.100.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 92.100.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,906% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 1.844.440.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 3.000.000.000 að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. maí 2022 til aðalfundar Kviku á árinu 2023, nema hámarks kaupverði verði náð fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021. Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|