2015-12-23 10:06:45 CET

2015-12-23 10:06:45 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsvirkjun - Fyrirtækjafréttir

Landsvirkjun semur um USD 200m alþjóðlegt sambankalán


Þann 22. desember skrifaði Landsvirkjun undir sambankalán á alþjóðlegum
bankamarkaði. Lánið er fjölmynta veltilán til þriggja ára að fjárhæð 200
milljónir Bandaríkjadala. Heimilt er að framlengja lánið tvisvar um eitt ár í
senn og getur lánstími því að hámarki orðið fimm ár. Með lántökunni hefur
Landsvirkjun lokið við endurnýjun samskonar láns sem samið var um árið 2011 með
lokagjalddaga í desember 2016. Lánið verður nýtt til almennrar fjárstýringar
Landsvirkjunar. 

Lánið er veitt af viðskiptabönkum Landsvirkjunar og voru umsjónaraðilar
Barclays Bank PLC, Citigroup Global Markets Limited, Íslandsbanki hf. og
Merchant Banking, Skandinaviska Enskilda Banken AB (publ). Aðrir þátttakendur í
láninu eru Arion Banki hf., ING Bank Belgium SA/NV og J.P. Morgan. 

Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í
síma 515-9000, netfang: rafnar@lv.is