2016-10-03 19:06:35 CEST

2016-10-03 19:06:35 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Fjárhagur styrkist, fjárfestingar aukast og verð á þjónustu lækkar


Fjárhagsspár OR 2017 og 2018-2022 samþykktar í stjórn

Reykjavík, 2016-10-03 19:05 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Fjárhagur Orkuveitu
Reykjavíkur og dótturfélaga mun halda áfram að styrkjast á næstu árum þrátt
fyrir talsverðar fjárfestingar og lækkun á gjaldskrám nú um áramótin. Þetta
kemur fram í fjárhagsspá fyrir árin 2017 til 2022 sem stjórn fyrirtækisins
samþykkti í dag. Nettóskuldir munu lækka um þriðjung á árabilinu. Fjárhagsspáin
er fyrir OR og dótturfélög. Veigamest þeirra eru Veitur ohf., Orka náttúrunnar
ohf. og Gagnaveita Reykjavíkur ehf. 

Verðskrár lækka um áramót

Planið sem OR hefur unnið eftir frá árinu 2011 rennur sitt skeið í árslok 2016.
Ráðdeild í rekstri sem Planinu fylgdi er orðinn stjórnendum og starfsfólki töm
og hluti þeirrar menningar sem byggð hefur upp innan samstæðunnar. 

Viðskiptavinir munu njóta þessa beint. Nú um áramót mun verð raforkudreifingar
lækka sem og vatnsgjaldið sem fasteignaeigendur greiða fyrir kalda vatnið.
Hagræðing í rekstrinum hefur leitt til aukinnar arðsemi þessara sérleyfisþátta
sem lúta lögum um hámarksarðsemi. Breyttar verðskrár verða kynntar í desember.
Veitur sjá um rafmagnsdreifingu frá miðjum Garðabæ í suðri til Akraness í
norðri og þjóna um helmingi landsmanna. Vatnsveitur Veitna eru í fimm
sveitarfélögum og þjóna um 40% landsmanna. Miklar fjárfestingar í fráveitum og
hitaveitum leyfa ekki lækkun á verði þeirrar þjónustu. 

Gert ráð fyrir arðgreiðslum

Hluti Plansins er að eigendum OR – Reykjavíkurborg, Akraneskaupstað og
Borgarbyggð – hefur ekki verið greiddur arður af eign sinni í fyrirtækinu. Í
þessari fjárhagsspá er gert ráð fyrir arðgreiðslum til eigenda OR á árinu 2018.
Áður en til þeirra kemur þarf að liggja fyrir að fjárhagur OR standist þau
arðgreiðsluskilyrði sem eigendur samþykktu árið 2015 og álagspróf sem gert
verður á rekstrinum með tilliti til arðgreiðslna. Það er svo í höndum eigenda
OR að ákveða á aðalfundi hvort arður verður greiddur. Gert er ráð fyrir að
arðgreiðslur aukist smátt og smátt eftir því sem greiðslubyrði af lánum
minnkar. 

Talsverðar fjárfestingar

Endurnýjun mikilvægra stofnæða í öllum veitukerfum heldur áfram. Þar má nefna
meginhitaveituæðar höfuðborgarsvæðisins, Vesturlands og á Suðurlandi og
endurnýjun mikilvægra burðarvirkja í raforkudreifingu, það er aðveitustöðva og
dreifistöðva. Uppbyggingu nýrra fráveitna á Vesturlandi verður að mestu lokið
fyrir árslok 2016. Þetta stóra umhverfisverkefni þýðir að fráveiturnar þar munu
standast kröfur og heildarfjárfestingaþörf fráveitna minnkar. Stækkun nets
Ljósleiðara til nærsveita Reykjavíkur verður haldið áfram á næstu árum þannig
að öll heimili á svæðinu geti keypt 1.000 megabita flutningshraða af
fjarskiptafyrirtækjunum. Þéttbýli Kópavogs verður fulltengt 2017 og
Hafnarfjörður og Garðabær klárast fyrir árslok 2018. 

Gufuöflun fyrir Hellisheiðarvirkjun er aðkallandi. Ljóst er að jarðhitasvæðin
næst virkjuninni anna ekki fullum afköstum hennar. Gufulögnin frá háhitasvæðinu
í Hverahlíð, sem tekin var í notkun í upphafi þessa árs, flytur nú gufu sem
stendur undir 50 MW rafmagnsvinnslu í Hellisheiðarvirkjun. Meira þarf til og
gerir áætlunin ráð fyrir ríflega 20 milljarða króna kostnaði við gufuöflun
fyrir Hellisheiðarvirkjun á næstu 6 árum auk 5 milljarða króna vegna
niðurdælingar á vinnsluvatni frá virkjuninni. Unnið er að gerð nákvæmra
forðalíkana af Hengilssvæðinu. 

Skuldir greiddar niður

Árlegar afborganir lána og vaxtagreiðslur eru áætlaðar frá 15 milljörðum til 20
milljarða króna á árunum 2017 til og með 2022. Þær fjárfestingar sem áformaðar
eru verða að mestu fjármagnaðar með fé frá rekstri en að hluta með nýju lánsfé.
Gert er ráð fyrir að nettóskuldir OR lækki um rúma 40 milljarða króna á árabili
spárinnar, eða 32%. 

Hlutfall nettóskulda og EBITDA sýnir hversu mörg ár það tæki að greiða skuldir
OR að fullu væri framlegðinni eingöngu varið til þess. Hlutfallið var 18 í
árslok 2009, 5,3 samkvæmt útkomuspá 2016 og 2,7 í árslok 2022, gangi þessi
fjárhagsspá eftir. 

Fjárhagsspá OR 2017 og langtímaspá 2018-2022 fara til umfjöllunar hjá
Reykjavíkurborg sem hluti af fjárhagsáætlun samstæðu borgarinnar. 

Fjárhagsspá

Við gerð þessarar fjárhagsspár OR halda fyrirtækin innan samstæðunnar áfram á
braut stefnumiðaðrar spágerðar (Beyond budgeting). Í aðferðinni felst að
hefðbundin áætlanagerð er einfölduð og afkomuspár eru tíðari. Hún felur í sér
að stjórnendur og starfsfólk ber aukna ábyrgð í fjármálum og daglegum rekstri
og styðst þar við skráða stefnu fyrirtækjanna og skýra markmiðssetningu. Til
samræmis við þessa þróun vinnubragða heitir viðhengt skjal Fjárhagsspá en ekki
Fjárhagsáætlun eins og fyrri ár. 


         Nánari upplýsingar:
         Bjarni Bjarnason
         Forstjóri OR
         516 7707