2017-03-02 21:49:59 CET

2017-03-02 21:49:59 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Marel hf. - Niðurstöður hluthafafundar

Helstu niðurstöður Aðalfundar Marel 2017


Aðalfundur Marel var haldinn í höfuðstöðvum félagsins í Garðabæ 2. mars 2017.
Allar tillögur sem lágu fyrir fundinum voru samþykktar. 

Ávarp stjórnarformanns

Ásthildur Margrét Otharsdóttir, stjórnarformaður Marel hóf fundinn á því að
ávarpa salinn. “ 2016 var gott ár fyrir Marel. Ár stefnumarkandi vaxtar og
frekari styrkingar á undirstöðum í rekstri Marel. Á tímum sviptinga á
alþjóðamörkuðum reyndust hvatar þeirra markaða sem Marel stólar á traustir. Sú
gríðarlega áskorun sem fylgir því að fæða jarðarbúa framtíðarinnar mun halda
áfram að veita Marel verðugar áskoranir  með áframhaldandi áherslu á sjálfbæra
virðisaukningu.” 

Stjórnarformaðurinn talaði fyrir þeirri tillögu stjórnar að greiða arð fyrir
árið 2016 sem nemur 20% af  hagnaði ársins. “Stjórn Marel er ánægð með að
leggja til heildararðgreiðslu til hluthafa sem nemur 15,3 milljónum evra. Þetta
er til samræmis við arðgreiðslustefnu félagsins,“ sagði hún. Að auki hefur
stjórn Marel veitt stjórnendum félagsins heimild til að kaupa eigin bréf fyrir
allt að 15 milljónir evra á árinu 2017  sem nýta má til greiðslu í hugsanlegum
yfirtökum í framtíðinni. 

Ásthildur minntist á þær áskoranir sem standa frammi fyrir Marel, neytendum og
fyrirtækjum heimsins í dag. “Mikilvægar framfarir áttu sér stað á árinu
varðandi frekari þróun og framkvæmd á formlegri nálgun á samfélagslegri ábyrgð
fyrirtækisins. Leiðbeinandi viðmið fyrirtækisins varðandi samfélagsábyrgð var
kynnt fyrir öllum starfsmönnum Marel, ásamt því að Marel gerðist þátttakandi í
Global Compact sáttmála Sameinuðu Þjóðanna.” sagði Ásthildur. 

Ávarp forstjóra

“2016 var frábært ár fyrir Marel. Marel er í hringiðu þeirra vinda sem blása og
móta efnahagslega framvindu í heiminum. Sýn okkar og stefna er skýr og við erum
í góðri stöðu til að umbreyta matvælavinnslu á heimsvísu,” sagði Árni Oddur
Þórðarson forstjóri Marel í erindi sínu á aðalfundi Marel. 

Árni Oddur gerði vaxtarsögu Marel að umtalsefni sínu. Sögu sem einkennist af
stefnumarkandi yfirtökum og innri vexti. Hann fór með gesti aðalfundarins  í
ferðalag aftur til ársins 2005 þegar tekjur Marel námu 129 milljónum evra, EBIT
var 10 milljónir evra og áhersla félagsins var að mestu á fiskiðnaðinn. Árið
2006 var vaxtarstefna Marel lögð fram á aðalfundi og kvað á um að Marel yrði
leiðandi á heimsvísu í að þróa, selja og þjónusta heildarlausnir til
viðskiptavina í kjöti, kjúklingi og fiski. 

Árni Oddur fór í gegnum yfirtökur síðustu ára og endaði á yfirtökunni á MPS
Meat processing systems sem lokið var í janúar 2016. „Marel keypti MPS án þess
að fara í hlutafjárútgáfu og hélt sér innan þeirrar fjárhagsskipunar sem stefnt
er að. Skuldahlutfallið var x2,9 þegar yfirtökunni var lokið en góð
rekstrarniðurstaða og sterkt sjóðstreymi frá rekstri hefur skilað því niður í
x2,25,“ sagði Árni.  Frá árinu 2005 hefur Marel vaxið að meðaltali 20% á ári,
1/3 hluti þessa vaxtar hefur verið innri vöxtur og 2/3 ytri vöxtur. Þetta hefur
skilað Marel þangað sem félagið er í dag; Leiðtogi á heimsvísu í þróun,
framleiðslu og þjónustu  á heildarlausnum  til vinnslu á fiski, kjöti og
kjúklingi með  tekjur nálægt einum milljarði evra og EBIT sem nemur 143
milljónum. 

Árni Oddur fór því næst yfir helstu atriði í rekstri síðasta árs.

„Pro forma tekjur ársins 2016 námu 983 milljónum evra samanborið við 819
milljónir árið 2015. Rekstrarhagnaður (EBIT) hefur aukist jafnt og þétt á milli
ára og var 143,5 milljónir evra eða 14.6% af tekjum árið 2016.  Hagnaður á hlut
jókst um 34% á milli ára,“ sagði Árni. 

Fyrir árið í heild var pantanastaða fyrir staðlaða vöru og varahluti sterk í
öllum iðnuðum og á fjórða ársfjórðungi tók pantanastaða stærri verkefna (e.
greenfields) við sér eftir laka byrjun á árinu.  Þetta skilaði sér í sterkri
pantanabók í árslok 2016. Stóru verkefnin sem komu inn undir lok ársins fara nú
í þróunarferli og byrja að skila inn tekjum á öðrum ársfjórðungi 2017. 

Árni talaði um tekjumódel Marel sem er samansett af þremur tekjustraumum.
Stærri verkefni, stöðluð vara og þjónustutekjur. Þjónustutekjur Marel voru á
síðasta ári 36% af tekjum samanborið við 7% árið 2005. „Stærri verkefnin eru
uppspretta framtíðartekna þar sem þau skapa þörf fyrir viðbætur og þjónustu til
lengri tíma litið,“ sagði Árni. 

Að lokum kynnti Árni framtíðarstefnu og -horfur Marel.  Marel stefnir á 12%
árlegan meðalvöxt  næstu 10 árin. Marel gerir ráð fyrir að markaðsvöxtur nemi
4-6% á næstu árum. Með sterkri markaðsstöðu og nýsköpun ætlar Marel að vaxa
hraðar en  markaðurinn með innri vexti. Sterk fjárhagsstaða og reynslumikið
teymi gerir Marel vel í stakk búið til að ná fram frekari vexti með
stefnumarkandi yfirtökum. Með því að viðhalda góðri rekstrarniðurstöðu og
sterku sjóðstreymi frá rekstri er hægt að ná fram 5-7%  ytri meðalvexti á ári.
Vert er að taka fram að hvorki innri né ytri vöxtur verður línulegur heldur mun
vöxturinn velta á þeim tækifærum sem í boði eru hverju sinni, hagsveiflum og
almennri efnahagsþróun. 

Ársreikningur samþykktur

Fundurinn samþykkti ársreikning og skýrslu stjórnar og forstjóra fyrir árið
2016. Allar tillögur sem lágu fyrir fundinum voru samþykktar. 

Stjórn Marel endurkjörin

Stjórn Marel var endurkjörin og hana skipa: Ástvaldur Jóhannsson, Ólafur
Guðmundsson , Arnar Þór Másson, Ásthildur Margrét Otharsdottir, Ann Elizabeth
Savage, Helgi Magnússon og Margrét Jónsdottir. 

Ný stjórn Marel hefur komið saman og skipt með sér verkum. Ásthildur Margrét
Otharsdóttir verður áfram stjórnarformaður og Arnar Þór Másson er varaformaður
stjórnarinnar 

Frekari upplýsingar

Frekari upplýsingar um aðalfundinn og niðurstöður hans eru aðgengilegar á
Marel.com og á upplýsingasíðu aðalfundar 2017 http://www.marel.com/agm.
Myndbandsupptaka af fundinum verður aðgengileg fljótlega á upplýsingasíðu
aðalfundar.