|
|||
2014-06-05 11:17:35 CEST 2014-06-05 11:18:35 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. selur 9,9% hlut í FSÍ (Framtakssjóður Íslands) slhf. og 27,6% hlut í IEI slhf.Landsbankinn hefur selt 9,9% eignarhlut í FSÍ (Framtakssjóður Íslands) slhf. og allan eignarhlut sinn í IEI slhf., eða sem nemur 27,6% en í árslok 2013 var FSÍ skipt upp í tvö félög, FSÍ slhf. og IEI slhf. Heildarsöluandvirðið er rúmlega 7 milljarðar króna og eru kaupendur í hópi núverandi hluthafa FSÍ og IEI, en hluthöfum í fyrrgreindum félögum voru boðnir hlutirnir til kaups í samræmi við samkomulag þess efnis. Landsbankinn var fyrir viðskiptin stærsti hluthafi beggja félaga með 27,6% eignarhlut í hvoru þeirra, en er að þeim loknum annar stærsti hluthafinn í FSÍ, með 17,7% eignarhlut. Landsbankinn á að sölunni lokinni ekki hlut í IEI slhf. Landsbankinn mun bókfæra samtals um 4,9 milljarða króna hagnað á öðrum ársfjórðungi vegna viðskiptanna og gangvirðisbreytinga á þeim hlut sem bankinn heldur eftir. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hafði umsjón með sölunni fyrir hönd Landsbankans hf. Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans: „Stefna Landsbankans er að selja þær eignir í óskyldum rekstri sem bankinn kann að eignast og hefur mikill árangur náðst á því sviði á undanförnum árum. Landsbankinn seldi eignarhaldsfélagið Vestia til Framtakssjóðsins árið 2010 og eignaðist við það um 27,6% í félaginu. Sú ráðstöfun hefur skilað bankanum miklum ávinningi og FSÍ hefur gengt mjög mikilvægu hlutverki í endurreisn íslensks atvinnulífs. Salan nú mun styrkja stöðu bankans, bæði til skemmri og lengri tíma.“ Nánari upplýsingar veitir Kristján Kristjánsson - pr@landsbankinn.is, 410 4011 & 899 9352 |
|||
|