|
|||
2022-07-01 00:21:00 CEST 2022-07-01 00:21:02 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - InnherjaupplýsingarArion banki: Allir fyrirvarar á kaupum Rapyd á Valitor uppfylltir - gengið verður frá kaupunum á næstu dögumMeð samþykki Samkeppniseftirlitsins þann 23. maí síðastliðinn og samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands sem nú liggur fyrir hafa allir fyrirvarar verið uppfylltir í samkomulagi Arion banka og Rapyd um kaup Rapyd á Valitor sem tilkynnt var um 1. júlí 2021. Gengið verður frá kaupunum á næstu dögum. Væntur hagnaður Arion banka vegna sölunnar, að frádregnum sölukostnaði, er áætlaður um 5,5 milljarðar króna, miðað við gengi dagsins. |
|||
|