2016-04-20 02:16:13 CEST

2016-04-20 02:16:13 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

CORRECTION: Íbúðalánasjóður selur 139 íbúðir


Íbúðalánasjóður og Heimavellir slhf. hafa náð samkomulagi um kaup þeirra
síðarnefndu á 139 íbúðum samtals að fjárhæð 1.829.000.000 af Íbúðalánasjóði og
var samningur þar að lútandi undirritaður nú í kvöld 

Þann 14. desember s.l. bauð Íbúðalánasjóður til sölu í opnu og gagnsæu
söluferli 15 eignasöfn fasteigna sem staðsett voru víða um landið. Í þessu
tilfelli er um að ræða sölu á 4 þessara eignarsafna. Fjöldi íbúða í þessum
eignasöfnum voru 504 eignir og er því hér um að ræða um 27,4% eignanna sem til
sölu voru. Kaupsamningar vegna  sölu annarra eignasafna sem í bárust
skuldbindandi tilboð verða undirritaðir á næstu vikum í samræmi við skilmála
söluferlisins. 

Sala þessara eigna mun hafa jákvæð áhrif á rekstur sjóðsins.

Nánari upplýsingar veitir Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs.