2015-11-24 10:25:16 CET

2015-11-24 10:25:16 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Arion Bank hf. - Fyrirtækjafréttir

Arion banki gefur út skuldabréf í norskum krónum


Í gær, mánudaginn 23. nóvember, lauk Arion banki skuldabréfaútgáfu í norskum
krónum. Samtals voru gefin út skuldabréf fyrir 300 milljónir norskra króna, eða
sem jafngildir um 4,6 milljörðum króna, til tæplega fimm ára. Um er að ræða
viðbót við skuldabréfaútgáfu bankans frá því í júní á þessu ári. Brefin, sem
bera NIBOR vexti að viðbættu 2,95% vaxtaálagi, voru seld á kjörum sem samsvara
NIBOR vöxtum með 2,80% álagi. Umframeftirspurn var eftir skuldabréfunum sem
seld voru til fjárfesta í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og á meginlandi Evrópu.
Pareto Securities sá um sölu skuldbréfanna. 

Samhliða skuldabréfaútgáfunni keypti Arion banki til baka NOK 75 milljónir af
skuldabréfaútgáfu frá árinu 2013. Arion banki hafði áður keypt 319 milljónir og
hefur bankinn samtals keypt NOK 394 milljónir tilbaka af NOK 500 milljón króna
útgáfu frá árinu 2013. 

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs
Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s. 856 7108.