2010-04-08 17:36:58 CEST

2010-04-08 17:37:56 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð Ríkisvíxla RIKV 10 0816


Þriðjudaginn 13. apríl kl: 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokki RIKV 10 0816 sem er með gjalddaga 16. ágúst 2010. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisveðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fimmtudaginn 15. apríl 2010.

Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX á Íslandi föstudaginn 16.
apríl 2010. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9633.