2008-11-03 12:27:21 CET

2008-11-03 12:28:21 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landic Property hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Viðar Þorkelsson ráðinn nýr forstjóri Landic Property


Viðar Þorkelsson hefur verið ráðinn forstjóri Landic Property í stað
Skarphéðins Berg Steinarssonar og tekur strax til starfa. 
Viðar Þorkelsson var framkvæmdastjóri fjármálasviðs Stoða (áður FL Group) frá
febrúar 2008. Á árunum 2006 til 2008 gegndi Viðar stöðu framkvæmdastjóra
fjármála- og tæknisviðs 365 hf. Viðar starfaði á árunum 2000-2005 sem
framkvæmdastjóri fjármála- og rekstarsviðs og síðar sem aðstoðarforstjóri
Vodafone og fyrirrennara þess félags. Á árunum 1988-2000 starfaði Viðar hjá
Landsbanka Íslands, m.a. sem svæðisstjóri og útibússtjóri. Viðar lauk prófi í
viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1988 og MBA gráðu frá Peter F. Drucker
Management Center í Bandaríkjunum 1993. 
Kristín Jóhannesdóttir, stjórnarformaður Landic Property:
“Ég færi Skarphéðni Berg Steinarssyni bestu þakkir fyrir árangursríkt og gott
samstarf. Undir stjórn Skarphéðins jók Landic Property umsvif sín verulega með
kaupum og sameiningu fasteignafélaga á Norðurlöndum. Stjórn Landic Property
væntir mikils af Viðari Þorkelssyni og telur að reynsla hans og hæfni muni
nýtast félaginu vel við núverandi aðstæður.” 
Viðar Þorkelsson, nýr forstjóri Landic Property:
“Það er ánægjulegt að fá tækifæri að taka við stjórn Landic Property, sem er
stórt félag með vandað eignasafn og öflugan hóp starfsmanna. Þetta er í senn
spennandi og krefjandi verkefni.” 
Skarphéðinn Berg Steinarsson, fráfarandi forstjóri Landic Property:
“Samstarf mitt við stjórn og hluthafa hefur verið einstaklega gott og enginn
ágreiningur verið um þá stefnu sem unnið hefur verið eftir.  Ég vil einnig
þakka starfsfólki Landic Property fyrir mjög góð, ánægjuleg og árangursrík
samskipti."

Nánari upplýsingar veitir:
Páll Benediktsson forstöðumaður Samskiptasviðs
Sími: +354 895 6066
PABE@Landicproperty.com