|
|||
2017-01-18 17:00:33 CET 2017-01-18 17:00:33 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarArion banki greiðir niður skuldabréf um 10 milljarð krónaÞann 20. janúar greiðir Arion banki inn á höfuðstól skuldabréfs 92.664.000 bandaríkjadali, auk áfallinna vaxta, að jafnvirði um 10 milljarða íslenskra króna. Höfuðstóll skuldabréfs nam 747.481.000 bandaríkjadölum (97 milljarðar kr.) við útgáfu í janúar 2016. Greiðslan kemur til viðbótar við greiðslur frá því í maí 2016 að fjárhæð 252.697.000 bandaríkjadala og desember 2016 að fjárhæð 237.120.000 bandaríkjadala. Höfuðstóll skuldabréfs eftir framangreindar greiðslur er 165.000.000 bandaríkjadala. Skuldabréfið er í eigu Kaupþings og var útgáfa þess liður í aðgerðum sem sneru að losun fjármagnshafta. Greiðslan er í samræmi við ákvæði skuldabréfs sem kveður á um skyldu Arion banka um að greiða inn á höfuðstól skuldabréfs við erlenda skuldabréfaútgáfu bankans. Greiðslan nú er í samræmi við skyldu Arion banka eftir útgáfu skuldabréfs þann 10. janúar 2017 þegar fyrri útgáfa frá 1. desember 2016 var aukin um 200 milljónir evra. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbankis, s: 856 7108. |
|||
|