|
|||
![]() |
|||
2012-03-13 12:45:06 CET 2012-03-13 12:46:08 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 12 0615 og RIKV 12 0917Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 12 0615 og RIKV 12 0917 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 12 0615: Alls bárust 19 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 9.364 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 6.664 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,290 (flatir vextir 2,80%). RIKV 12 0917: Alls bárust 11 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.850 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 1.050 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,324 (flatir vextir 3,30%). |
|||
|