|
|||
![]() |
|||
2008-01-21 14:03:16 CET 2008-01-21 14:03:16 CET REGULATED INFORMATION Glitnir banki hf. - Ársreikningur- Kynning Glitnis á ársuppgjöri 2007 haldinn 29. janúar nk.Eftirfarandi kynningar og símafundir verða haldnir í tengslum við afkomu Glitnis árið 2007 sem birt verður að morgni 29. janúar. Hægt verður að nálgast uppgjörið á www.glitnir.is frá og með birtingu uppgjörs þann 29. janúar. Kynning í Reykjavík Lárus Welding, forstjóri Glitnis, og Alexander K. Guðmundsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna uppgjör ársins 2007 fyrir hluthöfum og markaðsaðilum kl. 12:15, þriðjudaginn 29. janúar, á Hótel Nordica, sal F og G. Fundurinn fer fram á íslensku og má fylgjast með honum beint á Netinu á heimasíðu Glitnis, www.glitnir.is. Kynning í London Lárus Welding, forstjóri, og Alexander K. Guðmundsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna uppgjör ársins 2007 í London miðvikudaginn 30. janúar kl. 12:00. Fundurinn fer fram á Crowne Plaza London Shoreditch, 100 Shoreditch High Street, E1 6JQl, London. Þátttakendur vinsamlegast skrái sig hjá Völu Pálsdóttur, með því að senda póst á ir@glitnir.is eða hringja í síma 440 4989. Fylgjast má með fundinum beint á Netinu á heimasíðu Glitnis. www.glitnirbank.com, jafnframt verður hægt að senda spurningar á fundinn. Bókun fjölmiðlaviðtala Til að bóka fjölmiðlaviðtöl, vinsamlegast hafið samband við Má Másson, forstöðumann kynningarmála á Íslandi, með því að senda tölvupóst til mar.masson@glitnir.is eða hringa í síma 440 4990. |
|||
|