2022-08-16 17:40:20 CEST

2022-08-16 17:40:20 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Átta tilboð að fjárhæð 1.140m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfunni 6,70%-6,80%. Tilboðum að fjárhæð 1.060m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 6,76%. Heildarstærð flokksins verður 52.800 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Tíu tilboð að fjárhæð 1.620 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 27 á ávöxtunarkröfu á bilinu 6,49%-6,57%. Tilboðum að fjárhæð 1.180m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 6,55%. Heildarstærð flokksins verður 10.4400 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Uppgjörsdagur er 23. ágúst 2022.

Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.