2011-03-29 17:15:00 CEST

2011-03-29 17:15:09 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Flöggun

Stjórn og eigendur Orkuveitu Reykjavíkur samþykkja aðgerðaáætlun vegna fjárhagsvanda fyrirtækisins



Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og sveitarfélögin sem eiga fyrirtækið -
Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður og Borgarbyggð - hafa samþykkt umfangsmikla
aðgerðaáætlun til að skjóta tryggari stoðum undir rekstur og starfsemi
fyrirtækisins til loka ársins 2016 við þær erfiðu aðstæður sem nú eru á
lánamörkuðum. Fjárþörf OR er áætluð 50 milljarðar króna á árunum 2011-2016 og
það bil verður brúað með því að fresta nýfjárfestingum og viðhaldsverkefnum í
dreifikerfi, draga enn frekar úr rekstrarkostnaði, selja eignir, hækka
fráveitugjald og gjald fyrir heitt vatn. Þá mun OR fá víkjandi lán hjá eigendum
sínum þegar í stað og þannig verður komið í veg fyrir sjóðþurrð sem ella
stefnir í hjá fyrirtækinu fyrir mitt ár 2011. 

Aðgerðaáætlunin hefur hlotið samþykki í byggðaráðum Reykjavíkur, Akraness og
Borgarbyggðar með fyrirvara um staðfestingu sveitarstjórnanna. 




                      Engar leiðir opnar að erlendu lánsfé

Stjórn og stjórnendur OR kynntu margvíslegar ráðstafanir í ágúst 2010 til að
tryggja starfsemi fyrirtækisins. Þær leiddu til uppsagna starfsfólks og fólu í
sér hækkun gjaldskrár, rekstrarhagræðingu og sölu eigna sem ekki tilheyra
kjarnastarfseminni. 



Fyrir lá þá þegar að þessar ráðstafanir myndu ekki skila sér að fullu fyrr en
liði á árið 2011 og að OR yrði jafnframt að njóta áfram fyrirgreiðslu á
erlendum lánsfjármarkaði. Nú hefur hins vegar komið á daginn að áætlanir um
erlenda lánsfjármögnun ganga ekki eftir og fyrirtækinu er um megn að fjármagna
sig af eigin rammleik. 

Stjórn og stjórnendur Orkuveitunnar kynntu eigendum, sveitarfélögunum þremur,
þessa alvarlegu stöðu snemma árs 2011 og óskuðu samstarfs við þá um fjármögnun
fyrirtækisins. Aðgerðaáætlunin er afrakstur þess samstarfs og miðar að því að
tryggja rekstur fyrirtækisins til frambúðar og að OR geti staðið við
skuldbindingar sínar með sem minnstum áhrifum á þjónustu fyrirtækisins. 


                         Ráðstafanir í fimm meginþáttum

Þannig er málið í hnotskurn. Eigendur OR ætla að fjármagna fyrirtækið til loka
ársins 2016 án þess að lánastofnanir komi þar við sögu. Það eru sem sagt
viðbrögð sveitarfélaganna við ástandi sem við blasir eftir að staðreynt var að
fyrirtækið fékk ekki nauðsynlega lánafyrirgreiðslu. Sameiginleg niðurstaða
eigendanna er að taka af allan vafa um að Orkuveitan geti staðið undir skyldum
sínum gagnvart fólki og fyrirtækjum á veitusvæði sínu. 

Hins vegar þarf mun meira til að koma en lán eigendanna til að tryggja rekstur
Orkuveitunnar til frambúðar. Ráðstafanir í þeim efnum voru boðaðar í ágúst
2010, eins og fyrr er getið um, en nú hafa þær verið útfærðar enn frekar í
fjórum meginþáttum og tímasettar. Víkjandi lán frá eigendum OR er síðan fimmti
meginþáttur aðgerðaáætlunarinnar sem nú er kynnt. 




                       Sundurliðun og tímasetning aðgerða

Í töflunni hér að neðan er sundurliðun á aðgerðaáætlun OR og eigenda. Allar
fjárhæðir eru í milljónum króna. 





Aðgerð                       2011    2012    2013    2014   2015    2016   Alls 
--------------------------------------------------------------------------------
Frestun fjárfestinga vegna           2.000     900         -2.000   -900       0
 fráveitu                                                                       
--------------------------------------------------------------------------------
Frestun fjárfestinga í       1.205   3.518   2.690  2.518   2.410  2.659  15.000
 veitukerfum                                                 
--------------------------------------------------------------------------------
Lækkun annarra                 250     200     200    200     200    200   1.250
 fjárfestinga                                                                   
--------------------------------------------------------------------------------
Hækkun gjaldskrár            1.122   1.552   1.215  1.295   1.330  1.499   8.013
--------------------------------------------------------------------------------
Lækkun rekstrarkostnaðar       300     900     900    900   1.000  1.000   5.000
--------------------------------------------------------------------------------
Eignasala                    1.000   2.000   5.100  1.900                 10.000
--------------------------------------------------------------------------------
Víkjandi lán frá eigendum    8.000           4.000                        12.000
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals                     11.877  10.170  15.005  6.813   2.940  4.458  51.263
--------------------------------------------------------------------------------
Eignasala skv. samþ.          -375    -400                                  -775
 áætlun                                                                         
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals aðgerðaáætlun       11.502   9.770  15.005  6.813   2.940  4.458  50.488
--------------------------------------------------------------------------------





                          Frestun framkvæmda 2011-2016

  -- Slegið verður á frest fjárfestingum í veitukerfum, þar á meðal
     fráveitukerfum á Akranesi, í Borgarbyggð og í Reykjavík, fyrir um 15
     milljarða króna. Önnur fjárfesting verður skorin niður um 1,3 milljarða
     króna á tímabilinu.




                      Lækkun rekstrarkostnaður OR 2011-2016

  -- Rekstrarkostnaður verður lækkaður um 5 milljarða króna, bæði launakostnaður
     og annar kostnaður í starfseminni. Ekki verður ráðið í störf sem losna og
     reiknað er með að starfsfólki fækki um u.þ.b. 90 til ársloka 2016. Ekki er
     gert ráð fyrir að grípa til fjöldauppsagna líkt og síðastliðið haust.


                                Hækkun gjaldskrár

  -- Fráveitugjald verður hækkað um 45% og gjaldskrá fyrir heitt vatn um 8% 1.
     maí 2011. Gert er ráð fyrir að tekjur OR aukist um 6,1 milljarð króna til
     ársloka 2016 vegna hækkunar fráveitugjalds og um 1,9 milljarða króna á sama
     tímabili vegna verðhækkunar heita vatnsins.
     -- Útgjöld fjölskyldu í íbúð af algengri stærð aukast um tæplega 1.500
        krónur á mánuði, þar af um 1.000 krónur vegna hækkunar fráveitugjalds og
        tæplega 500 krónur vegna verðhækkunar hitaveitu.
     -- Ástæða gjaldskrárhækkunar er sú að  afkoma þjónustunnar er óviðunandi en
        ráðist hefur verið í miklar fjárfestingar í fráveitu og hitaveitu á
        undanförnum árum.


                                    Eignasala

  -- Ákveðið er að OR selji eignir sem ekki tilheyra kjarnastarfsemi
     fyrirtækisins fyrir 10 milljarða króna á árunum 2011-2016. Nokkrar eignir
     eru þegar seldar gegn verði í samræmi við væntingar. Áformað er að selja
     meðal annars fasteign að Bæjarhálsi 1 og eignarhluta í fyrirtækjum.


                            Víkjandi lán frá eigendum

  -- OR fær lán frá eigendum sínum, alls 12 milljarða króna, sem þeir skipta sín
     á milli í samræmi við eignarhluti sína í fyrirtækinu.* Lán að upphæð 8
     milljarðar króna verður veitt í apríl á þessu ári og 4 milljarðar króna
     árið 2013. Lánin eru til 15 ára á bestu kjörum Lánasjóðs sveitarfélaga og
     afborganalaus fyrstu 5 árin.
  -- Eigin lánalínur OR (heimild upp á 8 milljarða króna) verða einungis nýttar
     til að mæta markaðsáhættu og annars konar áhættu í rekstri á tímabili
     áætlunarinnar. Hér er einkum vísað til þess ef lausafjárþörf OR eykst vegna
     óhagstæðra breytinga á gengi krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum,
     innbyrðis hreyfinga erlendra gjaldmiðla, álverðs, vaxta eða verðbólgu.

Samanlagt er þessum ráðstöfunum ætlað að brúa um 50 milljarða króna óleysta
fjárþörf OR til ársloka 2016. Stjórn OR fjallaði um fjárþörf fyrirtækisins á
þessu tímabili haustið 2010 og samþykkti 25. október áætlun sem hljóðaði upp á
42 milljarða króna fjármögnunarþörf á árunum 2011 til og með 2016. Sú áætlun
hefur nú verið endurmetin og hljóðar upp á 50 milljarða króna einkum vegna
óhagstæðrar þróunar gengis og vaxta frá þeim tíma að áætlunin var gerð. 

Í viðhengi er endurskoðuð fjárhagsáætlun OR 2011 og fimm ára áætlun 2012-2016


         Bjarni Bjarnason, forstjóri OR. Sími 516 7707.