|
|||
![]() |
|||
2017-05-05 17:42:15 CEST 2017-05-05 17:42:15 CEST REGLERAD INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf. : Niðurstöður víxlaútboðsLandsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum, þegar útgefnum flokki, LBANK 171010 og nýjum flokkum, LBANK 171110 og LBANK 180510. Heildartilboð í útboðinu voru 25 talsins og námu samtals 5.140 m. kr. Átta tilboð að fjárhæð 780 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 171010 og voru vextir tilboða á bilinu 5,10%-5,40%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn. Ellefu tilboð að fjárhæð 2.160 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 171110 og voru vextir tilboða á bilinu 5,15%-5,40%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.740 m. kr. á 5,18% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,4207. Sex tilboð að fjárhæð 2.200 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180510 og voru vextir tilboða á bilinu 5,34%-5,55%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. maí 2017. Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar. [] |
|||
|