|
|||
2024-05-13 18:56:00 CEST 2024-05-13 18:56:01 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarArion Banki hf.: Arion banki gefur út almenn skuldabréf fyrir 300 milljónir evraArion banki gaf í dag út almenn skuldabréf að fjárhæð 300 milljónir evra til 4,5 ára. Skuldabréfin bera 4,625% fasta vexti sem jafngilda 175 punkta álagi yfir millibankavöxtum í evrum. Spurn eftir skuldabréfunum var mikil, 8,5 sinnum meiri en framboð, og í heild bárust tilboð frá yfir 190 fjárfestum frá meira en 25 löndum í Evrópu og Asíu. Endanleg tilboðsbók nam um 2,6 milljörðum evra. Þessi mikla eftirspurn leiddi til þess að um er að ræða hagkvæmustu niðurstöðu almennrar skuldabréfaútgáfu í evrum frá íslenskum banka í meira en 2 ár. Umsjónaraðilar (e. Deal Managers) útgáfunnar voru Barclays, Morgan Stanley, ABN Amro og JP Morgan. |
|||
|