2010-03-16 10:27:33 CET

2010-03-16 10:28:32 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Íbúðalánasjóður - Vaxtaákvörðun


Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir
sjóðsins verði óbreyttir.  Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða
áfram 4,5% en 5,0% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis. 

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggist á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem
haldið var 15.mars 2010 ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna
ÍLS-veðbréfa.  Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 3,85% 

Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,30%, vegna útlánaáhættu 0,35% og vegna
uppgreiðsluáhættu 0,50%. 

Stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðar vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón af
fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum
fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi, samkvæmt 3.
mgr. 21. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari breytingum, og  14.
gr. reglugerðar nr. 522/2004 um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf.