|
|||
![]() |
|||
2016-08-11 18:05:51 CEST 2016-08-11 18:05:51 CEST REGLERAD INFORMATION Landsbankinn hf. - ÁrsreikningurLandsbankinn hf. : Landsbankinn hagnast um 11,3 milljarða króna á fyrri helmingi ársins 2016Afkoma Landsbankans var jákvæð um 11,3 milljarða króna eftir skatta á fyrri helmingi ársins 2016 samanborið við 12,4 milljarða króna hagnað á sama tímabili árið 2015. Hreinar vaxtatekjur voru 17,6 milljarðar króna og hækkuðu um 9% á milli tímabila. Hreinar þjónustutekjur námu 3,9 milljörðum króna og hækkuðu um 14,7% frá sama tímabili árið áður. Virðisbreytingar hækkuðu um 0,4 milljarða króna á milli ára. Aðrar rekstrartekjur námu 4,4 milljörðum króna samanborið við 7,3 milljarða króna ári fyrr og skýrist lækkunin aðallega af minni hagnaði af hlutabréfum. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var 8,6% á ársgrundvelli samanborið við 10,4% á sama tímabili 2015. Rekstrartekjur á fyrri helmingi ársins námu 28,2 milljörðum króna samanborið við 28,8 milljarða króna á sama tímabili árið 2015. Rekstrarkostnaður hækkaði um 1,6% á milli ára. Launakostnaður hækkaði í takt við kjarasamninga en annar rekstrarkostnaður bankans lækkaði um 4,5% á milli tímabila. Heildareignir bankans í lok júní voru um 1.110 milljarðar króna samanborið við 1.173 milljarða króna ári fyrr og hefur því efnahagur bankans dregist saman um rúm 5% síðasta árið. Á aðalfundi bankans í apríl var ákveðið að greiða hluthöfum samtals 28,5 milljarða króna í arð og var eigið fé bankans 247,3 milljarðar króna í lok júní. Steinþór Pálsson bankastjóri segir: ,,Afkoma Landsbankans á fyrri helmingi árs er góð, sér í lagi á öðrum ársfjórðungi. Staða bankans er sterk og bankinn er í sókn. Á einstaklingsmarkaði mælist bankinn nú með 37,6% markaðshlutdeild, samkvæmt Gallup-könnun í júní, og hefur hún aldrei mælst hærri. Markaðshlutdeild á fyrirtækjamarkaði hefur einnig aukist og niðurstöður úr þjónustukönnunum sýna að einstaklingar jafnt sem fyrirtæki kunna vel að meta þjónustu bankans. Umsvifin í eignastýringu aukast jafnt og þétt og bankinn er í forystusveit þegar kemur að viðskiptum í kauphöll. Okkur þykir afar ánægjulegt að fleiri einstaklingar og fyrirtæki sjái sér hag í að beina viðskiptum sínum til bankans. Rekstrarárangur fyrstu sex mánuði ársins og aukin markaðshlutdeild bankans sýna að Landsbankinn er á réttri leið við innleiðingu á stefnu þótt enn sé verk að vinna." Símafundur á ensku: Þann 12. ágúst kl. 10:00, mun bankinn bjóða upp á símafund á ensku þar sem farið verður yfir helstu niðurstöður. Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með því að senda tölvupóst á ir@landsbankinn.is. Nánari upplýsingar veita: Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 6263 / 899 3745 Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is og í síma 410 7310 [HUG#2034759] |
|||
|