|
|||
![]() |
|||
2015-01-27 15:48:11 CET 2015-01-27 15:49:11 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirMánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs desember 2014Vanskil fóru minnkandi á árinu 2014 Í lok árs 2014 voru 5,49% þeirra heimila sem eru með fasteignalán sín hjá Íbúðalánasjóði með lán sín í vanskilum. Sambærilegt hlutfall í lok desember 2013 var 7,23% og hefur því heimilum í vanskilum fækkað um 24% á árinu. Þess má geta að sambærileg vanskilahlutföll lána til heimila hafa lægst farið rétt niður undir 2% á besta tíma í hagsveiflunni sé litið til síðustu 20 ára. Af þeim 46.700 heimilum sem eru með fasteignalán sín hjá Íbúðalánasjóði í lok árs 2014 voru 2.563 heimili í vanskilum og er það fækkun um 980 heimili á árinu. Yfir 95% af íbúðum í eigu Íbúðalánasjóðs eru í útleigu eða í söluferli Íbúðalánasjóður seldi 1.066 eignir á árinu 2014 á móti 311 eignum árið áður. Íbúðalánasjóður átti 1.891 eign í lok desember 2014 en af þeim voru 924 eignir í sölumeðferð og 875 eignir í útleigu. Sala eigna gekk vel á árinu og áherslan verður áfram á fækkun eigna í eigu sjóðsins. Ítarlegri umfjöllun má lesa í viðauka með meðfylgjandi mánaðarskýrslu |
|||
|