|
|||
2013-02-28 22:31:52 CET 2013-02-28 22:32:54 CET REGULATED INFORMATION Eimskipafélag Íslands hf. - ÁrsreikningurAfkoma Eimskips fyrir árið 2012 er í samræmi við væntingar félagsins-- Rekstrartekjur námu 414,3 milljónum evra -- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) eftir einskiptisliði var 40,8 milljónir evra -- Hagnaður eftir skatta nam 12,7 milljónum evra -- Eiginfjárhlutfall var 63,7% í árslok -- Flutningsmagn í áætlanasiglingum félagsins jókst um 3,4% á milli ára Gylfi Sigfússon, forstjóri „Afkoma ársins 2012 er í samræmi við okkar væntingar. Rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir á árinu 2012 nam 40,8 milljónum evra og hefur vaxið um 8,8% frá fyrra ári að teknu tilliti til einskiptisliða. Hagnaður Eimskips eftir skatta nam 12,7 milljónum evra. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir nam 10,2 milljónum evra á fjórða ársfjórðungi sem samsvarar 18,7% aukningu rekstrarhagnaðar, að teknu tilliti til kostnaðar við skráningu og kaupréttarsamninga sem fallið var frá á fjórðungnum, samanborið við fjórða ársfjórðung 2011. Flutningsmagn í áætlanaflutningum félagsins á Norður-Atlantshafi jókst um 3,4% frá fyrra ári. Magn í frystiflutningsmiðlun dróst hins vegar saman um 0,6% frá fyrra ári eftir nokkurn vöxt á árunum 2010 og 2011. Horfur í flutningum á Norður-Atlantshafi eru jákvæðar á komandi mánuðum en töluverður vöxtur hefur verið í flutningum frá Noregi og Færeyjum og í flutningum á milli Evrópu og Norður-Ameríku. Eimskip gekk frá kaupum á þremur frysti- og kæliskipum á árinu 2012, en félagið hafði verið með skipin á leigu frá árinu 2005. Kaupin efla enn frekar stoðir og rekstraröryggi siglingakerfisins á Norður-Atlantshafi og sérstaklega í þeirri þjónustu sem þau veita sjávarútveginum í Noregi. Gert er ráð fyrir að gámaskipin tvö sem eru í smíðum fyrir félagið í Kína verði afhent á seinni helmingi ársins 2013, en þau munu styrkja siglingakerfi og þjónustuframboð Eimskips á komandi árum. Frá og með síðari hluta marsmánaðar 2013 mun Ameríkuleið félagsins hefja viðkomur í Portland, Maine í stað Norfolk og Everett á austurströnd Bandaríkjanna. Meginmarkmið breytingarinnar er að stytta siglingartíma til og frá Bandaríkjunum og koma á reglubundnum siglingum aðra hverja viku. Breytingunni er einnig ætlað að styðja enn frekar við aukna flutninga á milli Norður-Noregs og Norður-Ameríku og bæta tengingu á milli Bandaríkjanna og Nýfundnalands, þar sem boðið verður upp á siglingar aðra hverja viku með þriggja daga siglingartíma, auk þess sem siglingartími milli Íslands og Norður-Ameríku styttist. Eimskip opnaði skrifstofu í Tælandi á árinu 2012 og í mars 2013 mun félagið opna skrifstofu í Gdynia í Póllandi og styrkir þar með þjónustu sína í frystiflutningsmiðlun í Eystrasaltinu. Félagið hefur lagt sérstaka áherslu á uppbyggingu á Norður-Atlantshafi og þá sérstaklega í tengslum við mögulegar Norðurheimskautssiglingar og verkefni tengd stóriðju, olíu og námuvinnslu ásamt hafnarþjónustu og annarri tengdri þjónustu. Eimskip tók í notkun nýtt og fullkomið snjallforrit, „App“, sem býður viðskiptavinum upp á að fá í rauntíma upplýsingar um stöðu sendinga í snjallsíma. Snjallforritið er auðvelt í notkun og sýnir jafnframt staðsetningu skipa Eimskips, skipaáætlun og siglingaleiðir og veitir auk þess upplýsingar um alla helstu þjónustuþætti fyrirtækisins. Áður hafði félagið kynnt til sögunnar vefviðmót fyrir viðskiptavini, ePort, þar sem fylgjast má með sendingum, leita upplýsinga og senda inn flutningsfyrirmæli. Frá janúar 2013 hefur Eimskip boðið nýja þjónustu í gegnum netið sem gengur undir nafninu eBOX, en með henni er boðið upp á þægilegar og einfaldar lausnir til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Eimskip leggur hér eftir sem hingað til áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu, en það hefur meðal annars verið gert með því að styrkja skipa-, gáma- og tækjakost félagsins á árinu. Eimskip lauk hlutafjárútboði sínu og skráningu á NASDAQ OMX Iceland í nóvember 2012. Markmiðið með skráningunni var að tryggja almenna og góða dreifingu á eignarhaldi félagsins en hluthafar eru í dag um 2.300 talsins. Hlutabréf félagsins voru tekin til viðskipta þann 16. nóvember 2012. Eimskip lítur björtum augum til framtíðarinnar og til mögulegra vaxtartækifæra á Norður-Atlantshafi og á alþjóðavísu. Félagið mun fagna 100 ára afmæli sínu þann 17. janúar 2014.“ Frekari upplýsingar -- Gylfi Sigfússon, forstjóri, sími: 525 7202 -- Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, sími: 525 7202 -- Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 825 7220, netfang: investors@eimskip.is |
|||
|