|
|||
![]() |
|||
2015-06-09 17:31:00 CEST 2015-06-09 17:31:01 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 15 0915 OG RIKV 15 1215Fimmtudaginn 11. júní kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 15 0915 og RIKV 15 1215 sem eru með gjalddaga 15. september og 15. desember 2015. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 15. júní 2015. Sótt verður um að RIKV 15 1215 verði tekin til viðskipta í NASDAQ á Íslandi þriðjudaginn 16. júní 2015. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635. |
|||
|