|
|||
2014-03-04 13:47:44 CET 2014-03-04 13:48:45 CET REGULATED INFORMATION Marel hf. - FyrirtækjafréttirMarel framlengir langtímafjármögnun félagsinsMarel hefur tryggt sér framlengingu á langtímafjármögnun félagsins. Fjármögnunin er veitt af fimm alþjóðlegum bönkum sem hafa samþykkt að framlengja gjalddaga fjármögnunarinnar um eitt ár. -- Fjármögnunin er framlengd um eitt ár með lokagjalddaga í nóvember 2017. -- Um er að ræða fjármögnun sem upphaflega var samið um í nóvember 2010, að fjárhæð 350 milljónir evra. -- Bankarnir, ABN Amro, ING, Landsbankinn, LB Lux og Rabobank veita fjármögnunina. -- Núverandi vaxtajör eru EURIBOR/LIBOR + 250 bps en geta breyst með tilliti til skuldsetningar félagsins. Framlenging fjármögnunarinnar gefur Marel aukinn sveigjanleika sem styður við langtímastefnu félagsins. Nánari upplýsingar veitir: Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 563-8464. Auðbjörg Ólafsdóttir, sérfræðingur í fjárfestatengslum, sími: 563-8626. |
|||
|