2022-07-05 19:43:28 CEST

2022-07-05 19:43:28 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Festi hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Festi hf.: Hluthafafundur 14 júlí - endanleg dagskrá og tillögur


Stjórn Festi hf. boðar til hluthafafundar sem haldinn verður fimmtudaginn 14. júlí 2022 klukkan 10.00 árdegis í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi.

Á dagskrá fundarins verða þrjú mál: Stjórnarkjör, eins og kom fram í tilkynningu um fundinn frá 16. júní sl., tillaga um breytingu á samþykktum félagsins samkvæmt tillögu eins hluthafa og að lokum dagskrárliðurinn: Önnur mál.

Í upphafi fundarins mun stjórn félagsins segja af sér til að tryggja að stjórnarkjör fari fram. 

Dagskrá fundarins

  1. Stjórnarkjör.
  2. Tillaga um breytingu á samþykktum félagsins, sem felur það í sér að nafni félagsins verði breytt í: Sundrung.
  3. Önnur mál.

Aðrar upplýsingar:

Öll skjöl og tillögur sem lögð verða fyrir hluthafafundinn verður að finna á vefsíðu félagsins www.festi.is/r/adalfundir. Þar má einnig finna skýrslu Tilnefningarnefndar og tillögu hennar um skipan stjórnar fram að næsta aðalfundi. Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi, virka daga milli klukkan 9:00-16:00. Fundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn jafnframt á íslensku.

Hluthafar geta látið umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð.

Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthöfum gefst kostur á að greiða atkvæði um mál sem eru á dagskrá fundarins bréflega. Skal beiðni um slíka atkvæðagreiðslu hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið hluthafar@festi.is eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 10.00 laugardaginn 9. júlí 2022.

Tillaga Tilnefningarnefndar um skipan stjórnar fram til næsta aðalfundar takmarkar ekki frekari framboð til stjórnar. Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 er hægt  að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega með minnst fimm sólarhringa fyrirvara fyrir hluthafafundinn, eða fyrir kl. 10.00 laugardaginn 9. júlí 2022. Framboðum skal skila á skrifstofu Festi hf., Dalvegi 10-14, Kópavogi, eða á netfangið hluthafar@festi.is. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en þremur sólarhringum fyrir hluthafafund. Hluthafar eiga rétt á að krefjast hlutfallskosningar eða margfeldiskosningar við stjórnarkjör í tvo sólarhringa frá því að stjórn kunngerir niðurstöður framboða til stjórnar, ef ekki er sjálfkjörið.

Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá klukkan kl. 9.30 á fundardegi.

Stjórn Festi hf.